Food and fun

Jæja, þá er alveg örugglega kominn tími á færslu.

Við hjónin fórum á Grand Hotel á ,,Food and fun" í kvöld.  Það er skemmst frá því að segja að þetta var alveg sérlega vel heppnaður málsverður.  Höfundur matseðilsins var Dante De Magistris, ítalskmenntaður en kokkar í BNA.

Það er langt síðan ég hef farið svona flott út að borða.  Allt umhverfið var með sérlega þægilegu og rómantískum hætti.  Hljómborðsleikari lék og söng.......yndislega ljúfur.  Röddin hans þýð og hrein.  Það er nefninlega allt of oft sem ,,kvöldverðarsöngvarar" syngja rammfalskt og eru einhvernvegin alveg ,,út úr kú".  En þessi var yndislegur og ekkert truflandi.  Það sem meira er að það var fólk sem fór að dansa - oft og mörgum sinnum. 

Á borði við hliðina á okkur voru tvenn eldri hjón.  Þau voru þarna til að skemmta sér.  Þau dönsuðu á milli rétta við gömlu slagarana eins og ,,Fly my to the moon" og ,,New York, New York" og margra klassískra íslenskra laga.  Þetta var eitthvað svo frábært.......ólýsanlegt.  Svona á að gera það!!!  Fara út að borða og skemmta sér um leiðHeart

Minn maður horfði í augun á mér og sagði: ,,Eigum við ekki að fara að læra dans".  En úr augum hans gat ég lesið: ,,Fyrirgefðu að ég kann ekki að dansa".  Æji, hann er bara yndislegur eins og hann er.  Þrátt fyrir þúsund þumalputta, tvo staurfætur og algert taktleysiInLove

Annars var ég að frétta að Regína Ósk og Friðrik Ómar hefðu unnið Eurovision.  Það er bara geggjað.  Bæði tvö frábærir söngvarar og verða okkur til sóma í Serbíu.  Íslenska þjóðin er sem sagt að vakna til meðvitundar um það að það er ekki alltaf hægt að senda út ,,brandara" til að keppa fyrir okkar hönd.


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Halló sætust, Og takk fyrir að finna mig og líta inn:-) Vissi ekki af þér hérna á blogginu en er jú ekki mestur partur af þjóðinni hérna  

Til lukku með daginn í dag gamla mín og flott hjá ykkur skötuhjúum að kíkja út á lífið.

Of hugsað til þín í gengum tíðina og oft saknað þín líka ...........þú ert yndisleg og hefur alltaf verið

Júlíus Már Baldursson (IP-tala skráð) 24.2.2008 kl. 23:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband